.

Sól Lyrics

Fuglarnir fá sér kríu í laufguðum trjánum,
stíga ekki í vitið, skítugir á tánum.
Fiðrildin breiða út vængi sína á förnum vegi,
fá flugu í höfuðið á góðum degi.
Sól! Bjóddu mér blíðu þína,
gefðu mér byr undir báða vængi.
Vorboðar háloftanna,
fljúga í hópum um varplendi hugans.
Smjörið drýpur af blómunum, vætla ofan í svörðinn.
Gamli maðurinn fær sér vatn, & rotar vörðinn.
Grasið teygir sig hátt til himna, grænkar & grær,
horfir á mig klámaugum klórar sér & hlær.

Sól! Bjóddu mér blíðu þína,
gefðu mér byr undir báða vængi.
Vorboðar háloftanna,
fljúga í hópum um varplendi hugans.
Report lyrics
Regnbogaland (1990)
Regnbogaland Frelsið Skynjun Veröld Tíminn Blóm Stúlka Tilvera Draumur Allt Tré Sól Himalaya Nostradamus