.

Hjálpaðu mér upp Lyrics

Hjálpaðu mér upp ég get það ekki sjálfur.
Ég er orðinn leiður á að liggja hér.
Gerum eitthvað gott. Gerum það saman.
Ég skal láta fara lítið fyrir mér.
Hjálpaðu mér upp
mér finnst ég vera að drukkna

Hvað getum við gert ef aðrir bjóða betur?
Dregið okkur saman, skriðið inn í skelina?
Nei, það er ekki hægt að vera minni maður.
Láta slíkt og annað eins spyrjast út um sig.
Hjálpaðu mér upp
mér finnst ég vera að drukkna

Þú - Þú getur miklu betur en þú hefur gert.
Þú - ert ekki sami maður og þú varst í gær.
Þú - Þú opnar ekki augun fyrr en allt er breytt,
opnar ekki augun fyrr en allt of seint.
Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera að drukkna,
drukkna í öllu þessu í kringum mig.
Flýtum okkur hægt, gerum það í snatri.
Ég verð að láta fara lítið fyrir mér.

Hjálpaðu mér upp
mér finnst ég vera að drukkna
Report lyrics
Ekki er á allt kosið... (1989)
Skjaldbakan Skýmir Apaspil Eplatré Fram á nótt Vetur konungur Hjálpaðu mér upp Eru ekki allir í stuði Ekki er á allt kosið