.

Frelsið Lyrics

Geng nakinn um húsakynnin,
bíð nýjann dag, velkominn.
Strýk framan úr mér mesta hárið.
Norðangarrinn feykir mér um kollinn á þér,
sem þú liggur á grúfu.
Andar að þér flóru landsins.
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.
Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?

Hér er fullt af mold
sem lyktar annars ágætlega.
Getur fólk átt erfitt með að tala?
Samt segir þú mér sannleikann
frá öllu sem þér býr í brjósti.
Liggur á bakinu, lætur tímann líða.
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.
Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.
Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?

Golan sveiflar gróðrinum,
gnæfir um.
Hárin risin holdið bert.
Það er gott að eiga kost á því,
að geta komist í náið samband.
Við náttúrunnar leyndardóma.
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.
Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.
Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?

Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.
Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil.
Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til?

Frelsið er yndislegt...
Report lyrics
Regnbogaland (1990)
Regnbogaland Frelsið Skynjun Veröld Tíminn Blóm Stúlka Tilvera Draumur Allt Tré Sól Himalaya Nostradamus