.

Þá kemur þú Lyrics

Þrýstingurinn í loftinu er veðrið inní mér.
Þó ég lækki um eitt millibar, get ég ekkert sagt á ekkert svar.
Stormurinn á undan logninu er biðin eftir þér.
Nú spáir roki og spáir kvíða, áframhaldandi kuldum víða.
Hvenær get ég hætt að skríða og gengið uppréttur.
Svo kemur þú, svo kemur þú
þá rofar til á milli hríða,
þú ert friðurinn á milli stríða.
Svo kemur þú, svo kemur þú
þér fylgir jafnan logn og blíða,
sunnanátt og almenn þíða
Þó ég biðji um nýja veðurspá er ekkert víst að úr henni rætist,
er áhugasamur um eigin gróður en haf aldrei verið veðurfróður.
Og lægðirnar sem leggjast á mig koma í veg fyrir að ég kætist.
Þegar dagurinn verður aldrei bjartur og hugurinn orðinn bikasvartur.
Einsog óbotnaður fyrripartur, órímaður.

Svo kemur þú, svo kemur þú
þá rofar til á milli hríða
þú ert friðurinn á milli stríða.
Svo kemur þú, svo kemur þú
þér fylgir jafnan logn og blíða
sunnanátt og almenn þíða.
Report lyrics