Þú sem átt engan að,
Ekki öruggan stað
Eða sæng til að hlýja þér í.
Þú sem misst hefur allt
Út í náttmyrkrið kalt,
Ertu borinn og vistaður því.
Ef þú átt engan aur
Ert þú örlítill maur
Luktum augum vors yfirvalds í.
Því að svefndrukkin þjóð
f**nar sjálfstæði, óð
Og allt siðferði brátt fyrir bí.
Þetta myrkranna afl
Mannar hættulegt tafl
Og þá mennirnir falla eins og strá.
Þar sem allt snýst um að
Setja tölur á blað
Og þá sitja menn fúlgunum á.
Af því sem þú hefur
Er það sem þú gefur
Nákvæmlega það sem þú munt fá.
Engin spurning um trú,
Þetta er lögmál og þú
Getur alls ekki komist því hjá.
Ekki öruggan stað
Eða sæng til að hlýja þér í.
Þú sem misst hefur allt
Út í náttmyrkrið kalt,
Ertu borinn og vistaður því.
Ef þú átt engan aur
Ert þú örlítill maur
Luktum augum vors yfirvalds í.
Því að svefndrukkin þjóð
f**nar sjálfstæði, óð
Og allt siðferði brátt fyrir bí.
Þetta myrkranna afl
Mannar hættulegt tafl
Og þá mennirnir falla eins og strá.
Þar sem allt snýst um að
Setja tölur á blað
Og þá sitja menn fúlgunum á.
Af því sem þú hefur
Er það sem þú gefur
Nákvæmlega það sem þú munt fá.
Engin spurning um trú,
Þetta er lögmál og þú
Getur alls ekki komist því hjá.